Segir hver...

Björn Bjarnason er stjórmálamaðurinn sem misbeitir valdi sínu hvað eftir annað. Hvað sem líður athugasemdum dómstóla og umboðsmanns Alþingis og fleiri aðila,
Ráðherrann yppir bara öxlum og segir lögin sem hann brýtur vera barn síns tíma. Eða svarar á þann hátt sem enganveginn er ráherra sæmandi, bara alls engum sæmandi, þegar spurt er hvort eðlilegt sé að auglýsa stöðu sama dag og umsóknarfrestur rennur út;
"Það hefur gefist ágætlega að auglýsa í Lögbirtingablaðinu" svarar Björn.. þrælfúll yfir að fólk sé að skipta sér af þessu.

Jú ég get verið sammála Birni að ég hef áhyggjur af þróun stjórmálastarfs og réttarríkis..
allavega á meðan hann gegnir stöðu dómsmálaráðherra.


mbl.is Björn lýsir áhyggjum af þróun stjórnmálastarfs og réttarríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Hroki hefur verið eitt höfuðeinkenni Björns sem stjórnmálamanns...hvað er almúginn að agnúast þetta ? hvað er smá spilling milli innmúraðra, ? til hvers að hafa fyrir því pota sér að kjötkötlunum ef maður má síðan ekki nota aðstöðuna til að hygla sér og sínum án þess að lýðurinn sé með eintóm leiðindi ?

Georg P Sveinbjörnsson, 16.5.2007 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband